Fréttir
Tæknivörur styðja Muninn
Tæknivörur, umboðsaðili Samsung á Íslandi, hafa ákveðið að styðja Muninn. Fyrirtækið býður Samsung Galaxy Tab A9+ spjaldtölvur á verulega lækkuðu verði fyrir verkefnið.
Hvers vegna skiptir þetta máli?
Markmið Hrafna Óðins ehf. er að Muninn standi öllum til boða, óháð fjárhag. Kostnaður við spjaldtölvu á ekki að ráða því hver getur nýtt sér lausnina.
Við sækjum nú um styrki til að geta gefið spjaldtölvur þeim sem hefðu annars ekki efni á þeim. Því lægra sem verðið á hverri spjaldtölvu er, því lengra nær hver styrkur og því fleiri heimili geta fengið spjaldtölvu með Muninn.
Muninn er hannaður fyrir Galaxy Tab A9+
Muninn er minnisskjár og minnisdagatal fyrir einstaklinga með heilabilun sem búa heima, og fyrir fjölskyldur þeirra. Taflan stendur alltaf á skjá heima og segir í orðum hversu langt er í næsta viðburð.
Muninn keyrir í vafranum og virkar á hvaða skjá sem er með nýlegum vafra, en hann er hannaður fyrir Samsung Galaxy Tab A9+. Þess vegna kemur hagstætt verð á einmitt þeirri spjaldtölvu verkefninu sérstaklega vel.
Takk, Tæknivörur
Við þökkum Tæknivörum kærlega fyrir stuðninginn. Hann færir okkur nær því markmiði að Muninn standi öllum til boða.
Á forsíðunni er farið nánar yfir töfluna, uppsetningu og persónuvernd.